STELLURNAR
22.12.2008 08:06:11 / thelmastella

Jólin!






Óska öllum stellum gleðilegra jóla
og alls hins besta á nýju ári.
Þakka skemmtilegar saumastundir á liðnum árum.
Jólakveðjur,
Thelma


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 13:26:57 / sunnastella

Pipparkökuskreytingar

Sælar allar saman.
Við systur ætlum að hafa pipparkökuskreytingardag (Vaðlaheiðarvegagerðar...) sunnudaginn 30. nóv. Þetta er ekki saumaklúbbsdæmi heldur bjóðum við bara slatta af fólki að koma í heimsókn upp úr 2 og skreyta kökur, hlusta á jólatónlist og drekka heitt kakó.
Þannig að ef þið eruð í jólaskapi endilega komið við og sýnið listræn tilþrif.
Það væri betra ef þið látið mig vita hvort þið búist við að koma þar sem við þurfum að áætla hversu mikið af piparkökum við bökum.
Sunna


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 16:27:33 / sunnastella

Saumaklúbbur ??

Hvernig er það er einhver áhugi á saumaklúbb hjá mér. Mín tillaga er næstkomandi sunnudag um 11 fyrir hádegi en einnig má athuga fimmtudaginn eftir viku. Endilega látið í ykkur heyr svo ég geti planað þetta.

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 10:51:10 / sunnastella

Saumaklúbbur - taka 2

játning:
Mig langar mikið að fá ykkur í heimsókn.
Eru þið til í að sjá auma á mér kanski í næstu viku á þriðjudagskvöldið eða í þar næstu viku þá gætu við haft þetta á venjubundna fimmtudagskveldinu. Svo kom sú hugmynd að bjóða ykkur bara í brunch á laugadegi eða sunnudegi. Ég verð reyndar upptekin bæði þessa og þar næstu helgi en svo eru helgar opnar eftir það.
Endilega látið mig vita hvað hentar.



» 7 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 15:19:36 / sunnastella

Leiðbiningar heim að bragga

1.       >Mikilvægt. Komið ykkur út úr Reykjavík. Mælt er með að þið farið vestur eftir og nýtið Reykjanesbraut sem akstursleið.

2.       Þegar búið er að aka fram hjá Bónus (verður hún komin á hausinn á þriðjudag?) á hægri hönd, styttist í aflegjara til vinstri sem merktur er Höfnum.

3.     Beyggið inn á Hafnar afleggjarann.

4.       Þegar sá aflegjari skiptist í tvennt takið þá vélbyssuleiðina þ.e. akið í gegn um hliðið að gamla varnarliðssvæðinu.

5.       Akið yfir allar hraðahindranirnar og sveigjurnar. Gott að æfa stýrisvöðvana.

6.       Akið svo sem leið liggur nokkur hundruð metra þangað til þið sjáið veg á hægri hönd merktann Virkisbraut. Beygið inn á hann.

7.       Akið þangað til þið komið að míní gatnamótum. Stoppið á stöðvunarskildunni. Veltið fyrir  ykkur lífinu og tilverunni. Akið svo beint yfir.

8.      Látið sem þið sjáið ekki furðulegu 900 númerin. Haldið áfram að aka.

9.      Þegar þið sjáið blátt hús merkt 1113 beygið þið inn á það bílastæði.

10.   Akið fram hjá húsi 1113 og að húsi 1114.

11.   Leggjið hinum megin við götuna. Þau hús eru ekki í notkunn.

12.   Labbið að ingangi merktum 1 og svo upp á 3.hæð.

13.   Bankið á hurð merkt 3B.

14.   Kanski svar ég ??

 

Heimilisfangið er sem sé Skógarbraut 1114-1-3B


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 18:55:39 / sunnastella

Saumó upp á velli

Jæja er ekki komin tími á að þið skoðið inn í braggann til mín. Ég býst við að hafa heitt á könnunni þriðjudagskveldið næst komandi. aldrei að vita nema eithvert meðlæti verði einnig í boði. Af gefnu tilefni verið þið að vera í ratleiksstuði þegar þið leggjið af stað. Hingað til hefur enginn rambað á kofann án þess að hringja í okkur systur og biðja um nánari upplýsingar. Ég mun því henda inn korti um helgina og þið getið svo reynt að sanna ratvísi ykkar. Annars get ég svosem staðið úti á horni og veifað bleiku ömmunærbuxunum mínum ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 12:06:15 / ibbastella

Kaffihúsaferð

Sælar,

Þar sem ég verð í bænum um helgina ætlaði ég að vita
hvernig kaffihúsaferð legðist í ykkur.
Ég kem á fimmtudag og fer sennilega á sunnudag eða mánudag.
Endilega látið mig vita sem fyrst.

Kveðja,
Ingibjörg


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 23:51:06 / birnastella

Jæja nú er komið að því ..

að virkja þessa síðu aðeins og já hvernig væri að hafa hitting bráðlega? Núna eru þær Elsa og Bryndís búnar að eiga, ég er enn í fullu fjöri (ehemm) og þið hinar eruð án efa í stuði. Þess vegna held ég nú að það sé kominn tími á það að við höfum smá saumaklúbbssamkvæmi heima hjá mér í Reyrengi 9 í Grafarvogi á fimmtudaginn um 20.30 leytið! Endilega meldið ykkur og látið vita hvort þið komist eða ekki! Til að tryggja að þið komist örugglega á leiðarenda þá set ég mynd af blokkinni okkar, bara svona til öryggis!



» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:19:19 / thelmastella

Febrúar saumó

Halló!

 

Hvað segið þið um saumó í næstu viku.

Eigum við að segja á fimmtudaginn 14. 

Miðv. og föstud. henta líka.

Kommentið. 

Kveðja,

Thelma. 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 22:40:20 / bennystella

Saumó 17.jan

Hæ stelpur!

Gleðilegt ár!

Vona að þið hafið allar haft það rosalega gott um jólin!

Til að fara yfir nýjársheitin og svona er tilvalið að koma í saumó til mín fimmtudaginn 17. jan. kl. 20.30

Vona að þið komist allar!

:D

kv. Benný


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 11:32:48 / ibbastella

Jólakveðja

Kæru stellur,

Með bestu óskir um gleðilega hátíð.

Þakka skemmtilegar samverustundir á árinu.

Vonandi sjáumst við meira á komandi ári.:D

Jólakveðja

Ingibjörg


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 09:13:55 / thelmastella

Jólakveðja

Jól 2007

Kæru stellur,

óska ykkur Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. 

Takk fyrir skemmtilegar stundir á árinu 2007

Bestu kveðjur,

Thelma Rún
 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 11:14:51 / katastella

Aðventa

Nú er fyrsti í aðventu og mér fannst upplagt að skrifa smá pistil. Eigum við ekki að reyna að hittast fyrir jólin stelpur mínar?

kikka á kaffihús eða á jólamarkað í Hafnafirði? Er opin fyrir öllum uppástungum.

Svo er spurning hvenær við eigum að hittast. Ég er laus eftir 7 des. Gæti því hitt ykkur í næstu viku.

Endilega að kommenta skvísur mínar!!

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 14:02:26 / bibbastella

Síðan okkar

Heheh hvað er málið með myndalinkinn á þessari síðu : Sumar 2007

 Rosa fín mynd af Dagbjörtu :D

 Thíhí, mér fannst þetta pínu fyndið þegar ég opnaði þetta :haha:

 

En hver er svo með saumó í október ? :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 10:45:31 / elsastella

Saumó fimmtudaginn 20.september hjá Elsu

Sælar stellur

Ég var að hugsa um að halda saumó á fimmtudagskvöldið næsta, 20.september.

Eigum við ekki bara að segja klukkan 20.

Endilega látið vita hvort þið komist eða ekki.

Kv. Elsa


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13